Tónninn gefinn

Þá höfum við fengið nokkur viðbrögð frá Evrópusambandinu varðandi hugsanlega inngöngu Íslands.

1.Móðgun við Tyrki fáum við að skjótast fram fyrir þá og sama gildir um Króatíu.

2.Stjórnmálaflokkur í Bæjaralandi og í Hollandi lýsa sig andsnúna inngöngu Íslendinga yfirleitt.

3.Bretar og Hollendingar eiga auðvelt með að fá aðrar aðildarþjóðir til að hafna okkur nema við gerum upp Icesave á þeirra forsendum.

Niðurstaðan; þetta getur tekið mörg ár og enn fleiri þangað til við fáum evruna,sem er helsta keppikefli sumra og röksemd fyrir inngöngu. það má vel ímynda sér  uppstillingu ESB í fyrstu samningum þannig: Borga Icesave, láta af hendi auðlindir til lands og sjávar ella getið þið átt ykkur. Síðan er spurning hvort við náum nokkurn tíman að uppfylla skilyrðin fyrir  upptöku evrunnar. Íslenskir stjórnmálamenn hljóta að átta sig á því,þrátt fyrir einbeittan inngönguvilja, að þjóðin segir NEI þegar þar að kemur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband