21.3.2012 | 12:09
Er ekki nóg komið ?
Manni virðist sem eina ráð seðlabankamanna í peningamálum sé að hækka vexti í hækkandi verðbólgu. Er verið að draga úr neyslu og fjárfestingu sem engin er ? Vextir auk verðbóta á útlánum hafa alltaf verið hreint okur. Og nú er enn gefið í. Eru þessir ráðamenn ekki á því, að rétt sé að halda byggð í landinu ? Er ekki réttara að fólk geti komið sér upp þaki yfir höfuðið eða þá haldið íbúðarhúsnæði á viðráðanlegum lánum og sambærilegum við nágrannalöndin ? Er aðalatriðið að fjármálastofnanir hafi það gott ? Hvað er að frétta af afnámi eða minnkun á vægi verðtryggingar ? Eru stjórnmálamenn og konur steinsofandi ?
Vextir gætu hækkað meira | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:35 | Facebook
Athugasemdir
Já er þetta bara ekki spurningin um að setja verðtrygginguna á öll laun aftur...
Það er engin vilji hjá Ráðamönnum að vinna fyrir fólkið í þessu svo eitthvað verður fólkið að gera og er þetta leið tildæmis...
Ég segi að þegar verðtryggingin var tekin af almennum launum í landinu á sínum tíma þá fór allt að fara fjandans til í fjárhag heimilana...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 21.3.2012 kl. 12:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.