19.6.2009 | 23:18
ICESAVE ÚTREIKNINGAR
ICESAVE ÚTREIKNINGAR
Til að átta sig á alvarleika málsins, að hafa ekki komið Icesave reikningunum í breska og hollenska lögsögu í tæka tíð þegar innlán þeirra tóku að vaxa okkur yfir höfuð,vil ég sýna hér með einföldum hlutfallareikningi hvers eðlis afleiðingarnar eru. Hér eru teknar brúttó vaxtaberandi skuldir.
700 milljarða skuld okkar í Bretlandi á mann: Bretar eru 61,1 milljón sem er því 11.500 krónur á hvert mannsbarn. Sama skuld á hvern Íslending er kr 2.195.000.
210 milljarða skuld í Hollandi á mann: Hollendingar eru 16.1 milljón sem er kr. 12.700 á hvert mannsbarn. Sama skuld á hvern Íslending er 658.000 krónur.
Stór spurning varðandi nýafstaðnið samningaferli er hvort viðsemjendur okkar hafi gert sér grein fyrir hversu fámenn við erum enda þótt íslenskir kaupahéðnar hafi hagað sér sem væru þeir fulltrúar milljónaþjóðar. Útlendingar eiga erfitt með í fyrstu að átta sig á að við, þessi fyrirferðarmikla þjóð, sé ekki talin í milljónum íbúa. Með þessu er ég ekki að segja að við eigum ekki að komast að samkomulagi við þessar vinaþjóðir en það má heldur ekki koma okkur endanlega á vonarvöl.
Mikil er ábyrgð Alþingis þessa dagana.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.6.2009 kl. 11:16 | Facebook
Athugasemdir
Ég held að allt hafi verið tekið með í reikninginn. Og held að við eigum engra kosta völ. Kalt mat. Þó ógeðfelt sé.
Kær kveðja til þín vinur..
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 23:39
Já, mikil er ábyrgð Alþingis nú um stundir. Veit að þú ert mikill stílisti Hallgerður (sbr síðustu færslu þína) og bið þig því velvirðingar á ambögum í greininni minni.
Sigurður Ingólfsson, 20.6.2009 kl. 09:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.